Hvað gerum við
Í boði eru meðal annars vagnar, rúm,vöggur, bílstólar, matarstólar, skiptiborð og annar nauðsynlegur barnabúnaður eftir lagerstöðu.
Fatnaður
Við útvegum fatnað fyrir börn frá fyrirburastærðum upp í 2 ára aldur. Fatapakkar eru settir saman eftir þörfum hverrar fjölskyldu.
Búnaður
Samfélag og stuðningur
Nýburar
Við viljum vinna með fagfólki, félagasamtökum og öðrum samstarfsaðilum til að tryggja að engin fjölskylda standi ein þegar mest á reynir.
Nýburar eru næst hjartanu okkar. Við útvegum meðal annars pelabúnað, snuð, vafningsteppi, bleyjur og aðrar hreinlætisvörur.
Okkar markmið.
Markmið Elenu er að tryggja að hvert barn fái það nauðsynlegasta í upphafi lífsins, óháð aðstæðum foreldra þess. Rannsóknir hafa ítrekað sýnt fram á að fyrstu ár ævinnar hafa afgerandi áhrif á heilsu, öryggi og þroska barna og því skiptir miklu máli að fjölskyldur hafi aðgang að nauðsynlegum fatnaði, búnaði og stuðningi þegar mest á reynir.
Jafnframt leggur Elena áherslu á sjálfbærni og ábyrga nýtingu auðlinda. Barnafatnaður og barnabúnaður eru oft aðeins notuð í stuttan tíma og rannsóknir sýna að endurnýting dregur verulega úr úrgangi, kolefnisspori og óþarfa neyslu. Með því að koma hlutum aftur í hringrás getum við bæði stutt fjölskyldur og minnkað umhverfisáhrif.
Við trúum því að samhjálp, endurnýting og samfélagsleg ábyrgð geti tryggt að ekkert barn hefji líf sitt í skorti.